Reykjalundur endurhæfir
Endurhæfum Reykjalund – landssöfnun
Nú þarf Reykjalundur á endurhæfingu að halda
Á Reykjalundi er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem þjónar þverskurði þjóðarinnar. Hún byggir fólk upp svo það nái vopnum sínum eftir veikindi og sendir það aftur út í lífið.
En nú þarf Reykjalundur sjálfur á endurhæfingu að halda. Húsakosturinn er úr sér genginn og viðhaldsþörfin mikil. Fjölmörgum rýmum hefur verið lokað vegna bágs ástands húsnæðisins og það hamlar starfseminni. Þörf er á skjótum úrbótum.
Safnað er fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar, meðal annars endurbyggingu sjúkraþjálfunarálmu.
Vonin er að ákallið nái til þjóðarinnar, fyrirtækja og stofnana landsins. Með samstilltu átaki styðjum við Reykjalund í að styðja áfram öll þau sem þurfa á endurhæfingu að halda í framtíðinni.
Nokkrar staðreyndir um Reykjalund
- Stærsta og ein mikilvægasta endurhæfingarmiðstöð landsins, starfandi frá miðri síðustu öld.
- Á annað þúsund manns fá endurhæfingu á Reykjalundi á ári hverju og öðlast bætt lífsgæði, færni og betri vinnu- og sjálfsbjargargetu.
- Endurhæfing er þjóðhagslega hagkvæm og mikil samfélagsleg verðmæti felast í starfseminni.
- Sjúkratryggingar greiða fyrir endurhæfingu hvers skjólstæðings en ekki húsnæðiskostnað. Starfsemin er ekki á fjárlögum ríkisins.
- Reykjalundur er í eigu SÍBS, rekinn á óhagnaðardrifnum grunni og greiðir ekki arð. Tekjur af happdrætti SÍBS fara minnkandi ár frá ári.